Taktu ábyrgð - Söluþjálfun
Útgáfudagur: 31/08/26
Síðast uppfært: 31/08/26
Um hvað er námskeiðið?
Markmið þessa sölunámskeiðs er að hjálpa sölufulltrúum að skilja af hverju við erum ekki að loka sölutækifærum sem blasa við okkur.
Námskeiðið hjálpar söluráðgjöfum að líta inn á við og taka ábyrgð á eigin árangri í stað þess að firra sig ábyrgð og búa til afsakanir.
Farið erí mikilvægi þess að tileinka sér einfalt og kraftmikið skipulag auk þess sem við getum náð ótrúlegum árangri með því að æfa næstu skref til þess að mæta betur undirbúin.
Fyrir hverja?
Þetta námskeið hentar öllum sem starfa við einhvers konar sölustörf á fyrirtækjamarkaði, jafnt söluráðgjöfum eða sölustjórum.
Leiðbeinandi
Leiðbeinandi Ófeigur Friðriksson hefur starfað við söluþjálfun frá því árið 2014 en starfað við ýmis sölustörf í tæp 30 ár sem sölumaður, viðskiptastjóri og sölustjóri.
Ófeigur á og rekur SPM söluþjálfunog söluráðgjöf þar sem hann hefur þjálfað allt frá söluráðgjöfum upp í ýmsa millistjórnendur hjá fjölmörgum fyrirtækjum.